Hann er ekki sjúkdómurinn

Helga ráðleggur öllum að vera opnir með geðsjúkdóma.
Helga ráðleggur öllum að vera opnir með geðsjúkdóma. mbl.is/Golli

„Hann var bara átta ára þegar hann greindist og sjúkdómurinn veldur því að hann gerir margt öðruvísi og skrýtið. En það má aldrei gleyma því að hann er bara eðlilegur strákur. Hann er ekki sjúkdómurinn, hann er ekki geðhvörfin.“

Þetta segir Helga Björg Dagbjartsdóttir, móðir 13 ára gamals drengs, sem greindist með geðhvörf átta ára gamall. „Hann fer hátt upp og langt niður. Þess vegna kalla ég hann rússíbanann.“

Í samtali í Morgunblaðinu í dag segist Helga aldrei hafa orðið vör við fordóma vegna veikinda sonar síns, en viðhorf til geðsjúkra barna sé annað en til barna með aðra sjúkdóma. Í því sambandi nefnir hún að eitt sinn hafi hún fengið þau svör varðandi sérhæft úrræði fyrir drenginn að það kostaði of mikið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert