Hommar fái að gefa blóð

Heilbrigðisráðherra vill að samkynhneigðir karlmenn fái að gefa blóð.
Heilbrigðisráðherra vill að samkynhneigðir karlmenn fái að gefa blóð. mbl.is/Ómar

Vegna breyttra starfa og verkefna sumra nefndarmanna í ráðgjafanefnd um fagleg málefni í blóðbankaþjónustu hafa þeir óskað lausnar frá nefndarstörfum og er unnið að því að skipa nýja í nefndina í stað hinna. Nefndin mun vinna áfram að endanlegum tillögum þegar hún hefur verið skipuð að nýju.

Þetta kemur fram í svari Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Brynhildar Pétursdóttur um heimild samkynhneigðra karla til að gefa blóð.

Þá segir einnig að ráðherra vilji að leitað verði leiða til að breyta gildandi regluverki svo að samkynhneigðum karlmönnum verði heimilt að gefa blóð.

Frétt mbl.is: Blóðgjöf sjálfsögð mannréttindi

Í svari ráðherra segir einnig:

Ráðuneytinu barst 10. júní 2015 fundargerð ráðgjafanefndar um fagleg málefni í blóðbankaþjónustu. Í svari nefndarinnar voru nefnd nokkur lykilatriði sem nefndin taldi þurfa að skoða og vinna að:

a. að öryggi blóðþega sé alltaf haft í fyrirrúmi, 
b. að ekki verði gerðar breytingar á lögum og reglum um blóðgjöf nema að vel ígrunduðu máli og á grundvelli vandaðra gagna sem nauðsynlegt er að afla, vinna úr og meta með tilliti til áhrifa á öryggi blóðþega og á starfsemi Blóðbankans, 
c. að æskilegt sé að sóttvarnalæknir kortleggi skimun fyrir smiti auk þess að kortleggja smit, 
d. að æskilegt sé að gera áhættumat fyrir HIV og hepatitis C á grundvelli skimunar, 
e. að unnið verði að því að auka skimun fyrir smiti. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert