Reglugerð um vistvæna landbúnaðarframleiðslu felld brott

mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur undirritað reglugerð þar sem felld er brott reglugerð nr. 504/1998 um vistvæna landbúnaðarframleiðslu. Reglugerðin tekur gildi 1. nóvember.

Ástæður þess að umrædd reglugerð er felld úr gildi eru m.a. að ekki hefur verið reglubundið eftirlit með þeim aðilum sem hafa fengið vistvæna vottun, samkvæmt upplýsingum frá atvinnuvegaráðuneytinu. Þá hafa frá gildistöku reglugerðarinnar verið sett margvísleg lög og reglur sem gera ítarlegri kröfur til framleiðslu landbúnaðarafurða, en gamla reglugerðin um vistvæna landbúnaðarframleiðslu gerir.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið óskaði eftir athugasemdum vegna brottfalls reglugerðarinnar á heimasíðu ráðuneytisins þann 4. september. Frestur til athugasemda var til 28. september 2015. Ráðuneytinu bárust engar athugasemdir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert