Fann fullt umslag af peningum

Um verulega háa fjárhæð er að ræða.
Um verulega háa fjárhæð er að ræða. Ásdís Ásgeirsdóttir

Lögreglan á Suðurnesjum er að reyna að ná í mann sem tók út verulega fjárhæð úr Landsbankanum en týndi umslagi með peningunum. Það var nefnilega komið með umslagið á lögreglustöðina um hálfníuleytið í morgun en þar var á ferð heiðarleg kona sem fann umslagið á gangstétt fyrir utan heimili sitt. 

Lögreglan hvetur alla þá sem veitt geta upplýsingar um málið að hafa samband en kvittun í umslaginu sýnir hver á reikninginn sem peningarnir voru teknir út af. 

Uppfært klukkan 9:26 

Eigandinn er fundinn og er að sögn lögreglu afar þakklátur konunni sem fann umslagið og skilaði því til lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert