Framhjólið fór undan bifreiðinni

mbl.is/Hjörtur

Bílstjóri jeppabifreiðar missti stjórn á henni á Kringjumýrarbrautinni í Reykjavík í kvöld með þeim afleiðingum að annað framhjólið fór af bifreiðinni, hún valt og endaði á ljósastaur.

Einn var fluttur á slysadeild samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins en ekki mun vera um alvarleg meiðsl að ræða. Slysið olli talsverður töfum á umferð á Kringlumýrarbrautinni í suðurátt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert