Lýst eftir Birgittu Sif

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Birgittu Sif Gunnarsdóttur, 17 ára, til heimilis í Reykjanesbæ.  Birgitta fór frá heimili sínu  um miðjan dag á laugardaginn s.l. og er talin halda til höfuðborgarsvæðinu. 

Birgitta Sif er þéttvaxin, 160 sentímetrar á hæð, með sítt dökkbrúnt hár niður á axlir. Upplýsingar um klæðnað liggja ekki fyrir.

Þeir sem verða varir við Birgittu Sif eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 444-2299.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert