Fjárhæðin mun hærri en talið var

Frá Siglufirði
Frá Siglufirði Sigurður Bogi Sævarsson

Magnús Jónasson, fyrrverandi forseti bæjarstjórnar á Siglufirði, er grunaður um fjárdrátt fyrir um 100 milljónir króna hjá Sparisjóði Siglufjarðar og er það mun hærri fjárhæð en kært var fyrir, að Ólafs Þórs Haukssonar, sérstaks saksóknara.

Vísir greindi fyrst frá fjárhæðinni í morgun.

Ólafur segir í samtali við mbl.is að við rannsókn málsins hafi komið nýjar upplýsingar fram, færslur sem hver ein er skoðuð sjálfstæð. Í einhverjum tilvikum er verið að skoða þær betur og segir hann að fjárhæðin geti bæði hækkað og lækkað. 

Rannsókn á fjársvikunum stendur yfir og ekki er ljóst hvenær ákæra verður lögð fram í málinu.

Átta starfs­menn embætt­is sér­staks sak­sókn­ara fóru til Siglu­fjarðar í lok september og voru tveir handteknir í tengslum við rannsóknina.

Um nokkurra ára tímabil er að ræða en í yf­ir­lýs­ingu frá AFLi spari­sjóði, sem áður hét Spari­sjóður Siglu­fjarðar, frá því í byrjun október kem­ur fram að eft­ir fyr­ir­spurn frá sér­stök­um sak­sókn­ara, í alls óskyldu máli, hafi komið upp rök­studd­ur grun­ur um fjár­drátt fyrr­um skrif­stofu­stjóra AFL spari­sjóðs og í fram­haldi af því hafi málið verið kært til sér­staks sak­sókn­ara.

Á fundi bæjarstjórnar 6. október sl. baðst Magnús lausar á embætti forseta bæjarstjórnar. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert