Fyrirhuguð olíuleit og vinnsla á Drekasvæðinu samræmist á engan hátt alþjóðlegum skuldbindingum Íslands um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Þetta kemur fram í hvatningu sem óformlegur hópur fólks úr nokkrum félagasamtökum ætlar að afhenda gestum á Arctic Circle-ráðstefnunni sem hefst á morgun.
Í hvatningunni, sem ber fyrirsögnina „Vekjum ekki sofandi dreka“, segir ennfremur að ekki sé hægt að ræða um norðurslóðir án þess að ræða loftslagsbreytingar enda muni svæðið verða fyrir gríðarlegum breytingum á næstu áratugum sem séu þegar hafnar. Norðurskautið hlýni nú tvisvar til þrisvar sinnum hraðar en svæði sunnar á jörðinni.
„Þessar breytingar eru um margt afar neikvæðar, þótt einhverjir sjái fyrir sér tækifæri á gróða. Sá gróði verður skammvinnur, því breytingarnar ógna lífi og afkomu íbúa á norðurslóðum og í raun allra jarðarbúa,“ segir þar bæði á íslensku og ensku.
Því hefur hópurinn tekið sig saman um að nota tækifærið og hvetja ráðstefnugesti til að beita sínum töluverðu áhrifum í þágu baráttunnar gegn loftslagsbreytingum til að tryggja að jörðin verði áfram byggileg. Verður þeim afhend hvatningin áður en ráðstefnan hefst í Hörpu í fyrramálið.