Bílslys á Miklubraut

Frá slysstað.
Frá slysstað. mbl.is/Árni Sæberg

Umferðarslys varð á Miklubraut við Skeifu um klukkan 16:50 þar sem tveir bílar lentu saman.

Voru fjórir sjúkrabílar og einn tækjabíll frá slökkviliði sendir á staðinn. Fimm manns voru fluttir á slysadeild til skoðunar og aðhlynningar. Að sögn slökkviliðs er ekki ljóst með líðan fólksins en allir komust út úr bílunum af sjálfsdáðum.

Uppfært 17:30

 Lögreglan á höuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér tilkynningu um að akbraut Miklubrautar til vesturs, við Skeiðarvog,  sé lokuð vegna slyssins. Akbrautin verður lokuð þar til um kl. 19:00 samkvæmt tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert