Lögregla leitar ræningja

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú tveggja manna sem frömdu rán í Gullsmiðjunni í Lækjargötu í Hafnarfirði síðdegis, en ræningjarnir voru grímukæddir, ógnuðu starfsmanni með bareflum og brutu upp hirslur.

Höfðu þeir á brott með sér umtalsverð verðmæti, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu.

Ræningjarnir óku á brott á hvítum jepplingi, sem er talinn vera stolinn og á röngum skráningarnúmerum. Lögregla vill taka fram að starfsmanninn sakaði ekki, en honum var mjög brugðið.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um mennina og bílinn eru beðnir að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 112, en upplýsingum má einnig koma á framfæri í einkaskilaboðum á Facebook-síðu lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert