Hinn látni var um sextugt

Einn hefur verið handtekinn vegna málsins.
Einn hefur verið handtekinn vegna málsins. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Karlmaður á fertugsaldri er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu grunaður um að hafa orðið manni að bana í húsi við Miklubraut í Reykjavík í gærkvöld.

Lögreglu barst tilkynning um alvarlega líkamsárás í áðurnefndu húsi kl. 21.55, en þegar hún kom á staðinn örskömmu síðar fannst karlmaður um sextugt sem hafði orðið fyrir líkamsárás og var hann úrskurðaður látinn á vettvangi.

Lagt var hald á eggvopn, sem grunur leikur á að hafi verið notað við verknaðinn. Hinn látni bjó í húsinu og meintur gerandi sömuleiðis, en enginn annar er grunaður í málinu. Lögð verður fram krafa um gæsluvarðhald yfir hinum handtekna síðar í dag.

Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

Frétt mbl.is: Manndráp við Miklubraut

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert