Ákvörðun um friðlýsingu ekki of sein

Steinhlaðinn hafnargarðurinn.
Steinhlaðinn hafnargarðurinn. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Það er mat Minjastofnunar að skyndifriðun hafnargarðsins á Austurbakka í Reykjavík hafi tekið gildi hinn 10. september sl. og gilt til 22. október. Þessu vill stofnunin koma á framfæri vegna frétta „ýmissa fjölmiðla“ um að ákvörðun setts forsætisráðherra um friðlýsingu hafnargarðsins hafi komið degi of seint.

Forsætisráðuneytið tilkynnti 22. október sl. að Sigrún Magnúsdóttir, settur forsætisráðherra í málinu, hefði fallist á tillögu Minjastofnunar um að friðlýsa hafnargarðinn í heild.

Í yfirlýsingu Minjastofnunar segir m.a. að í 2. mgr. 20 gr. laga um menningarminjar nr. 80/2012 segi: Skyndifriðun tekur gildi þegar Minjastofnun Íslands hefur tilkynnt öllum hlutaðeigandi aðilum um ákvörðun sína með tryggilegum hætti. Ákvörðun er bindandi eftir að tilkynning um hana er komin til aðila og gildir í allt að sex vikur.

„Tilkynning um skyndifriðun var send til Landstólpa þróunarfélags ehf. sem komið hefur fram sem framkvæmdaraðili á fyrri stigum málsins gagnvart stofnuninni og forsætisráðherra í lok vinnudags 9. september. Tilkynningin barst félaginu um fjögurleytið þann dag en þar sem bréfið var afhent vaktmanni í Stjórnarráðinu eftir lok vinnudags fékk forsætisráðherra það í hendur daginn eftir 10. september 2015. Ekki var send sérstök tilkynning til forsvarsmanna húsfélags Austurbakka 2, en lóðin er í óskiptri sameign eftirtalinna aðila; Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhús ohf., Landstólpa þróunarfélags ehf., Situs ehf., Kolufells ehf., Landsbankans hf. og Bílastæðasjóðs Reykjavíkurborgar, sem síðan hafa stigið fram sem hagsmunaaðilar í málinu. Þá hefur Reginn fasteignafélag einnig stigið fram sem hagsmunaaðili í málinu,“ segir í yfirlýsingunni.

Það sé því mat stofnunarinnar að skyndifriðun hafnargarðsins hafi sem fyrr segir tekið gildi 10. september og gilt til 22. október.

„Það álit stofnunarinnar kemur einnig fram í rökstuðningi fyrir skyndifriðun sem sendur var lögfræðingum framkvæmdaraðila og lóðareigenda og borgarlögmanni þann 23. september sl. og hefur ekki verið mótmælt. Dagsetningarnar 10. september og 22. október hafa því komið fram í gögnum málsins og ekki verið mótmælt í umsögnum aðila í ferli málmeðferðarinnar.“

Frétt mbl.is: Fellst á friðlýsingartillögu

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert