Færist niður um eitt sæti

mbl.is/Styrmir Kári

Mest velsæld ríkir í Noregi ef marka má árlega úttekt Legatum Institute, í öðru sæti kemur Sviss og þar á eftir Danmörk. Nýja Sjáland er í fjórða sæti, Svíþjóð er í fimmta sæti og Kanada í því sjötta. Næst koma Ástralía, Holland, Finnland og Írland.

Legatum ber í úttekt sinni lönd saman út frá ákveðnum þáttum sem saman skapa velsæld á meðal landsmanna. Kannað er meðal annars hvernig löndin standi sig efnahagslega og í menntamálum, persónufrelsi, heilbrigðismálum, öryggismálum og frumkvöðlastarfsemi. Mælingin nær til 142 landa í heiminum eða 96% af mannfjölda heimsins og 99% af vergri landsframleiðslu heimsins. 

Ísland er í 12. sæti í ár og færist niður um eitt sæti frá því fyrir ári. Fleiri ríki ofarlega á listanum færast til um eitt eða tvö sæti. Nýja Sjáland var í þriðja sæti á síðasta ári en færist niður í fjórða sætið, Kanada færist úr fimmta sæti niður í það sjötta, Finnland fer úr áttunda sæti í það níunda og Bandaríkin úr tíunda sæti í 11. sæti svo dæmi séu tekin.

Þrjátíu efstu lönd á lista Legatum Institute og breytingar á sætaskipan miðað við síðasta ár:

1. Noregur

2. Sviss

3. Danmörk (+1)

4. Nýja Sjáland (-1)

5. Svíþjóð (+1)

6. Kanada (-1)

7. Ástralía

8. Holland (+1)

9. Finnland (-1)

10. Írland (+2)

11. Bandaríkin (-1)

12. Ísland (-1)

13. Lúxemburg (+3)

14. Þýskaland

15. Bretland (-2)

16. Austurríki (-1)

17. Singapúr (+1)

18. Belgía (-1)

19. Japan

20. Hong Kong

21. Taívan

22. Frakkland (-1)

23. Malta

24. Spánn (+2)

25. Slóvenía (-1)

26. Tékkland (+3)

27. Portúgal

28. Suður Kórea (-3)

29. Pólland (+2)

30. Sameinuðu arabísku furstadæmin (-2)

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert