Verkfall aftur boðað í Straumsvík

Verkfall hefur verið boðað að nýju í Straumsvík.
Verkfall hefur verið boðað að nýju í Straumsvík. mbl.is/Árni Sæberg

Fimm af sex verkalýðsfélögum starfsmanna álvers Rio Tinto Alcan í Straumsvík hafa samþykkt að boða til allsherjarverkfalls þann 2. desember ef ekki nást samningar fyrir þann tíma. Aðeins félagsmenn í VR höfnuðu því að boða til allsherjarverkfalls.

Forsvarsmenn álversins hafa haldið því fram að verði verkfall gæti það leitt til þess að fyrirtækinu verði lokað.

Gylfi Ingvarsson, talsmaður verkalýðsfélaganna í Straumsvík, segir að í flestum verkalýðsfélögunum hafi verið afgerandi stuðningur fyrir því að boða verkfall og að verkfallsboðunin sé svar við þeirri háttsemi stjórnenda fyrirtækisins að beita áróðri á vinnustaðnum.

Þá hafi verið hætt við boðað allsherjarverkfall í lok sumars í þeirri viðleitni að liðka fyrir viðræðum og freista þess að ná samningum. Það hafi ekki tekist og nú finni menn sig knúna til þess að boða verkfall að nýju.

Gylfi Ingvarsson talsmaður starfsmanna álversins í Straumsvík.
Gylfi Ingvarsson talsmaður starfsmanna álversins í Straumsvík.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert