Perla komin á kaf á ný

Búið er að sökkva Perlu aftur í sæ.
Búið er að sökkva Perlu aftur í sæ. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Sanddæluskipið Perla er komið á kaf á ný eftir að ákveðið var að dæla vatni inn í afturhluta skipsins. Var það gert til að reyna að rétta skipið af. Í morgun gekk vel að lyfta afturskipinu en aftur á móti lyftist framskipið lítið.

Telja verður ljóst að skipið verður ekki komið á flot um þrjúleytið líkt og vonað var í morgun. mbl.is fylgist áfram með aðgerðum á vettvangi. 

Perlan að rísa úr sæ. Þessi mynd er tekin á …
Perlan að rísa úr sæ. Þessi mynd er tekin á tíunda tímanum í morgun. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert