Heilsa ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla frá neytendum Sólgæti lífrænt hveitibulgur vegna þess að aðskotahlutur (fjöður) fannst í einum poka.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Dreifing: Fjarðarkaup, verslanir Hagkaupa, verslanir Kjarvals, verslanir Krónunnar, verslun Nóatúns, Lifandi markaður og verslanir Nettó.
Neytendur sem hafa keypt vöruna eru vinsamlega beðnir um að skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt eða farga henni.