Einstaklingum sem sem eru 25 ára eða eldri og eru skráðir í framhaldsskóla fækkar um 742 á milli ára. Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir þetta áhrif þess að ekki sé lengur gert ráð fyrir þessum nemendum í bóknámi. Sú stefna sé ekki skólapólitík sem hún vilji skrifa undir.
Alls voru 3.642 einstaklingar sem eru 25 ára eða eldri skráðir í framhaldsskóla nú í haust en það eru 15,4% af öllum framhaldsskólanemum. Langflestir þeirra, tæplega þrjú þúsund, eru skráðir á list- eða starfsnámsbrautir, að því er kemur fram í svari menntamálaráðherra við skriflegri fyrirspurn Oddnýjar á Alþingi.
Í fjárlagafrumvarpi þessa árs var ekki gert ráð fyrir að framhaldsskólar tækju við nemendum 25 ára eða eldri í bóknám. Það virðist þegar hafa haft áhrif því nemendum á þeim aldri hefur fækkað um 447 í bóknámi á milli ára samkvæmt tölunum sem Oddný hefur fengið í ár og í fyrra. Eldri nemendum í starfsnám- og listbrautum hefur hins vegar einnig fækkað, alls um 295 á milli ára.
Oddný segir að takmarkanirnar verði til þess að fólk sæki ekki um nám. Hennar flokkur hafi gagnrýnt þess skólapólitík að takmarka aðgang að framhaldsskólunum og beina þessum hópi í einkaskólana. Sérstaklega komi þetta niður á nemendum af landsbyggðinni.
„Fólkið sem gat áður stundað fjarnám eða nám í framhaldsskóla í sinni heimabyggð þarf núna að rífa sig upp með börn og bú með ærnum tilkostnaði í dýra einkaskóla. Þetta er skólapólitík sem ég vil ekki skrifa undir. Það er alveg ljóst að þetta hefur haft áhrif því þeir eru þarna mun færri 25 ára og eldri í framhaldsskólunum,“ segir Oddný.
Hún spyr hvar þetta fólk sé nú, hvort það sé í einkaskólunum eða hvort það hafi hætt við að fara í nám. Hún segist ætla að afla sér frekari gagna frá einkaskólunum um fjölda nemenda í þessum aldurshópi í framhaldinu.
Langflestir eldri nemendanna eru skráðir í Tækniskólann eða 1.055 af þeim 3.642 framhaldsskólanemum sem eru 25 ára eða eldri. Um það bil tveir af hverjum fimm nemendum skólans eru 25 ára eða eldri.
Þar á eftir kemur Fjölbrautarskólinn við Ármúla með 677 nemendur á þeim aldri og Fjölbrautarskólinn í Breiðholti með 433. Um það bil einn af hverjum þremur nemendum í FÁ eru 25 ára eða eldri.
Rétt tæpur fimmtungur nemendanna sem eru 25 ára og eldri er skráður á bóknámsbrautir. Meirihlutinn, rúm 80%, er hins vegar skráður í list- og starfsnámsbrautir.
Enginn nemandi 25 ára eða eldri eru skráðir til náms í Menntaskólanum í Reykjavík, Menntaskólanum við Hamrahlíð eða Kvennaskólanum. Í Verslunarskólann eru skráði sjötíu eldri nemendur.