Ekki útlit fyrir að Perla verði notuð á ný

Perlann kominn á flot
Perlann kominn á flot mbl.is/Árni Sæberg

Útgerðarstjóri Björgunar telur ekki útlit fyrir að hægt verði að nota dæluskipið Perlu aftur.

Skipið náðist í fyrrakvöld af botni Gömlu hafnarinnar í Reykjavík þar sem það hafði legið frá byrjun mánaðarins.

Jóhann Garðar Jóhannsson útgerðarstjóri segir að á þessari stundu sé ekki hægt að segja til um hvað gert verði við skipið að lokinni hreinsun og rannsókn lögreglu. Það sé í höndum tryggingafélags Björgunar, að því er fram kemur í umfjöllun um skipið í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert