Heilmikil hafísmyndun og ísinn nálgast

Hafís á Grænlandssundi. Dökkblá lína 18.11.2015 18:59 *GMT. Milliblá lína …
Hafís á Grænlandssundi. Dökkblá lína 18.11.2015 18:59 *GMT. Milliblá lína 19.11.2015 08:21 GMT. Ljósblá lína 19.11.2015 12:13 GMT Ljósmynd/Eldfjallafræði- og nátturuvárhópur Jarðvísindastofnunar H

Hafísinn hefur færst nær landi og var um 44 sjómílur (81,5 km) norðvestur af Straumnesi í gær.

Heilmikill nýr ís er að myndast og allt bendir til þess að ísinn muni færast nær landi um helgina. Ingibjörg Jónsdóttir, dósent í landfræði við Háskóla Íslands, sagði þó ekkert benda til þess að siglingaleiðir myndu lokast, að minnsta kosti ekki fyrst um sinn.

Á meðfylgjandi korti má sjá færslu hafíssins á tæpum sólarhring. Dökkbláa línan sýnir ísjaðarinn kl. 18.59 sl. miðvikudagskvöld. Millibláa línan sýnir jaðarinn kl. 08.21 í gærmorgun og sú ljósasta kl. 12.13 í gær. Það er ljóst að ísinn sækir hratt á auðan sjó.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert