„Voru að svala fýsnum sínum“

mbl.is

Móðir stúlkunnar sem sakaði fimm menn um að hafa nauðgað sér í Breiðholti í maí 2014 hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún segir m.a. að engar fallegar tilfinningar hafi verið að verki, „einungis grímulaus greddan og eigingjarnt tillitsleysi gagnvart bjargarlausri manneskju“.

Mennirnir fimm voru sýknaðir af hópnauðgun í héraðsdómi Reykjavíkur í dag en einn þeirra var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að mynda atvikið.

Frétt mbl.is: Sýknaðir af hópnauðgun

„Ef það er einhver hér á landi sem efast um að glæpur hafi verið framinn þá þarf það að koma fram að engin unglingsstúlka undir áhrifum áfengis hefur samræði við 5 ókunnuga menn í einu af fúsum og frjálsum vilja. Það er ekki kynlíf, það er ofbeldi. Það ætti öllum sem ganga heilir til skógar að vera fullljóst,“ segir móðirin, Lilja Björnsdóttir, í yfirlýsingunni sem birtist á Vísir.is.

Frétt mbl.is: Ekki ákveðið með áfrýjun

Yfirlýsingin í heild:

Allir vita að kynlíf er eitt en nauðgun annað og á þetta tvennt ekkert sameiginlegt. Mig, móður brotaþola, langar að upplýsa alla um nokkrar staðreyndir vegna hópnauðgunar sem átti sér stað í Asparfelli í maí 2014. Gerendur voru fimm en brotaþoli einn. Þeir voru í dag sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur og eðlilegt er að spyrja sig hvort þar hafi skipt máli að allir verjendur og tveir af þremur dómurum eru karlkyns.

Að taka þátt í hópkynlífi er öllum frjálst ef allir eru því samþykkir og stofnað er til þess með vitund, vilja og samþykki allra er taka ætla þátt. Að ætla að einstaklingur  sem er til staðar fyrir tilviljun sé tiltækur til að taka þátt í þannig leik án þess að vera í samráði við hann í upphafi eða skipuleggja þannig leik án vitundar  þess einstaklings er fjarri því að vera í lagi og telst ekki vera kynlíf heldur nauðgun.
Það hefur verið gríðarlega erfitt fyrir dóttur mína að fást við þetta brot og auðveldast hefði verið fyrir hana, til skamms tíma, að sleppa því að leggja fram kæru eins og hún ætlaði sér fyrstu dagana á eftir brotið.  Að ákveða að kæra svona brot er erfitt og dregur dilk á eftir sér. Öll fjölskylda brotaþola  sem og vinir hennar og kunningjar verða fyrir gríðarlegu  áfalli við þessar fréttir og til að mynda fékk amma hennar taugaáfall og endaði á bráðamóttöku í kjölfarið af því að við foreldrarnir  þurftum að segja henni og afa hennar þessar hræðilegu fréttir. 

Að  kæra nauðgun er ekki einfalt og við taka mjög erfiðar  og nærgöngular skýrslutökur  ásamt því að þurfa að horfa á myndband af verknaðinum í viðurvist lögreglu og réttargæslumanns og í tilviki dóttir minnar starfsmanns barnaverndar þar sem hún var einungis 16 ára þegar á henni var brotið. Að þurfa að horfa á sjálfa sig í þannig niðurlægjandi aðstæðum þar sem fimm drengir eru hlæjandi og flissandi að skemmta sér við að nauðga manni er gríðarlega erfitt og þarf sterka og heiðarlega persónu til að treysta sér til þess.  Að leggja af stað í þá vegferð gerir maður ekki nema að hafa sannleikann með í för.

Staðreyndin er sú að þessir drengir voru að svala fýsnum sínum á henni og skeyttu engu um hana. Enginn spurði hana hvað hún vildi eða hvernig henni leið. Engar fallegar tilfinningar voru að verki einungis grímulaus greddan og eigingjarnt tillitsleysi gagnvart bjargarlausri manneskju. Skeytingarleysið var algjört og enginn var maður til að koma henni til hjálpar og stöðva verknaðinn.

Ef það er einhver hér á landi sem efast um að glæpur hafi verið framinn þá þarf það að koma fram að engin unglingsstúlka undir áhrifum áfengis hefur samræði við 5 ókunnuga menn í einu af fúsum og frjálsum vilja. Það er ekki kynlíf, það er ofbeldi. Það ætti öllum sem ganga heilir til skógar að vera fullljóst. Þetta er ofbeldi af verstu sort og tími til kominn að koma því til skila til allra hér á landi að ungar stelpur eru ekki dót sem hægt er að gera hvað sem er við, bara af því þær þora ekki að neita eða berjast á móti. Þessu verður að fara að linna. Ef þú ert númer fimm í röðinni getur þú bókað að um nauðgun er að ræða.

  • Til baka
  • Senda

Innlent »

Ekki búinn að samþykkja Sigurð Inga

Í gær, 23:31 Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki samþykkt að Sigurður Ingi Jóhannsson taki við embætti forsætisráðherra. Þetta kemur fram í Twitter-skilaboðum sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins, sendi frá sér í kvöld. Meira »

Tillaga þingflokksins stendur óbreytt

Í gær, 22:53 Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra, segir tillögu þá sem þingflokkur Framsóknarflokksins samþykkti í dag standa óbreytta. Meira »

„Má vel vera að einhverjir misskilji þetta“

Í gær, 22:22 Tilkynning upplýsingafulltrúa ríkisstjórnarinnar til erlendra fjölmiðla, þar sem fram kemur að forsætisráðherra hafi lagt til við þingflokk Framsóknarflokksins að Sigurður Ingi Jóhannsson tæki að sér embættið um ótilgreindan tíma, er í takt við stjórnskipunarlög segir aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs. Meira »

81% vildi að Sigmundur segði af sér

Í gær, 22:21 Mikill meirihluti landsmanna telur að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson eigi að segja af sér embætti forsætisráðherra. Þetta er niðurstaða úr nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Meira »

Segir Sigmund ekki hafa sagt af sér

Í gær, 21:26 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur ekki sagt af sér og bað Sigurð Inga Jóhannsson um að taka að sér embætti forsætisráðherra í „ótiltekinn tíma“ samkvæmt tilkynningu sem upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar sendi erlendum blaðamönnum í kvöld. Meira »

Óformleg fundarhöld fram á kvöld

Í gær, 21:21 Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson munu ekki funda meira í kvöld en að sögn Sigurðar hafa þeir sett ákveðna vinnu af stað. Trúnaðarmenn flokkana munu funda fram á kvöld. Meira »

Ferðin á Bessastaði söguleg

Í gær, 21:10 „Þessi niðurstaða sem náðist í dag eftir allt sem á undan gekk, ferðina á Bessastaði og það allt saman, er sú niðurstaða sem ég átti von á að yrði ofan á í gær,“ segir Stefanía Óskarsdóttir, dósent við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Meira »

Árekstur í Heiðmörk

Í gær, 21:13 Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst rétt í þessu tilkynning um árekstur tveggja bifreiða í Heiðmörk rétt ofan við Maríuhella. Þrír farþegar voru í bílunum og er sjúkrabíll á leiðinni á svæðið. Meira »

Þáttur Sigmundar „stærstur og verstur“

Í gær, 20:45 „Persónulega finnst mér ekkert sjálfgefið að Sigurður Ingi verði forsætisráðherra þó að Sigmundur Davíð stígi til hliðar,“ segir Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins um sviptingar dagsins. „Ég held að það sé eitthvað sem flokkarnir verða einfaldlega að ræða sín á milli.“ Meira »

Allir nema einn studdu að Sigmundur stigi til hliðar

Í gær, 20:39 Allir nema einn þingmaður Framsóknarflokksins studdu þá tillögu að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson stigi til hliðar sem forsætisráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson, varaformaður Framsóknarflokksins, taki við embætti forsætisráðherra. Meira »

Mun ræða hvort flýta eigi kosningum

Í gær, 20:10 Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segist binda vonir við að nóg hafi verið gert með afsögn Sigmundar Davíðs. Hann segir að eitt af þeim málum sem hann muni ræða við Sigurð Inga Jóhannsson, sé hvort tilefni sé til að flýta kosningum. Meira »

„Engar stjórnarmyndunarviðræður“

Í gær, 19:53 „Við vorum að fara yfir atburði dagsins og ræða næstu skref,“ segir Ásmundur Einar Daðason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, í samtalai við mbl.is, aðspurður um hvað fór fram á fundi Bjarna Benediktssonar, Sigurðar Inga Jóhannssonar og Ólafar Nordal, sem lauk í Valhöll fyrr í kvöld. Meira »

Treysta sér til að sefa reiðina

Í gær, 19:53 Þetta eru dramatískir dagar; fordæmalausir í sögunni, sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í viðtali við Ísland í dag. Sagði hann um viðburði dagsins að menn þyrftu að taka því sem höndum ber. Meira »

Hugðist „vopnast“ fyrir framhaldið

Í gær, 19:36 Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir engan vafa á því hvaða erindi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fráfarandi forsætisráðherra átti á Bessastaði fyrr í dag, þar sem embættismenn ríkisráðsins voru með í för. Meira »

„Lögðum línur að næstu skrefum“

Í gær, 18:59 Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að það hafi verið einhugur hjá þingflokknum á þingflokksfundi í Valhöll í dag að reyna á áframhaldandi samstarf stjórnarflokkanna. „Það var góð samstaða um það,“ segir hann. Meira »

Mótmælum lokið

Í gær, 19:37 Mótmælum fyrir utan Valhöll er nú lokið. Mótmælendur boðuðu til annarra mótmæla á morgun fyrir utan Alþýðusamband Íslands.   Meira »

„Sögulegur dagur í íslenskum stjórnmálum“

Í gær, 19:06 „Ég held að stóra spurningin núna í dagslok er hvað gerist næst?“ segir Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, aðspurður um hvers megi vænta eftir atburði dagsins. Meira »

Með merkari dögum í íslenskri stjórnmálasögu

Í gær, 18:58 „Þetta er án efa með merkari dögum í íslenskri stjórnmálasögu síðustu áratuga og jafnvel lengur,“ segir Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur, er hann er spurður um atburðarrás dagsins í íslenskum stjórnmálum. Meira »
BOKIN.IS GRÍÐARLEGT ÚRVAL AF BÓKUM TIL SÖLU BOKIN.IS ÚTVEGUM BÆKUR BOKIN.IS
BOKIN.IS ÚRVAL BÓKA Á HEIMASÍÐU OKKAR. PANTANIR AFGREIDDAR SAMDÆGURS OG PÓ...
Bréf til Láru - frumútgáfa
Brét til Láru til sölu, frumútgáfa. Árituð og tölusett. Uppl. í s. 772-2990 eða ...
PÚSTKERFI Á HAGSTÆÐU VERÐI
Eigum fyrirlyggjandi PÚSTKERFI í flestar tegundir bifreiða. Einnig STÝRISLIÐI ...
Netverslun - My Style tiskuhús
Smart föt, fyrir smart skvísur, í stærðum 38-52 - alltaf eitthvað nýtt og spenna...
 
Bókhald - skrifstofuvinna
Önnur störf
Bókhald - skrifstofuvinna Óskum eft...
Aðalskipulag
Tilkynningar
Stykkishólmsbær Hafnargötu 3, 3...
Aðalfundur
Fundir - mannfagnaðir
Matvæla- og veitingafélag Ís...
L fjölnir 6016040819 i lf.
Félagsstarf
? FJÖLNIR 6016040519 I Lf. Mynd af ...