147 milljónir í hönnun nýs Herjólfs

mbl.is/Ómar

Í lok september 2015 nam kostn­aður við hönnum á nýjum Herjólfi 147.083.890 kr. Þar af er kostn­aður við ráðgjöf og sérfræðiaðstoð vegna hönnunar 136.790.328 kr., að vatnslíkanprófunum og gerð útboðsgagna meðtöldum. 

Þetta kemur fram í svari Ólafar Nordal innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Ásmundi Friðrikssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, um kostnað við hönnun á nýjum Herjólfi.

Ásmundur spurði hversu hár kostn­aður við hönnun á nýjum Herjólfi væri orðinn og hver væri kostn­aður við ráðgjöf og sérfræðiaðstoð vegna hönnunarinnar.

Hann spurði ennfremur, hver væri kostn­aður við líkanprófanir í tanki erlendis.

Fram kemur í svari ráðherra, að kostn­aður vegna vatnslíkanprófana erlendis hafi numið 139.200 evrum og hafi verið greitt fyrir þá vinnu 21.492.480 kr.

Einnig var spurt hver væri áætlaður viðbótarkostn­aður vegna lengingar ferjunnar um 4,2 metra og tankprófana á stærri ferju?

„Mat ráðgjafa Vegagerðarinnar er að viðbótarkostn­aðurinn sé óverulegur, þ.e. innan við 2-4%, þar sem fyrst og fremst er um aukið stálmagn að ræða. Tilboð norska fyrirtækisins Polarkonsult í viðbótartankprófanir nemur 64.900 evrum eða um 9,4 millj. kr.“ segir í svarinu.

Loks spurði Ásmundur, hversu hár hönnunarkostn­aður nýrrar ferju hefði upphaflega verið áætlaður?

„Algengt er að smíði og hönnun sé boðin út saman. Miðað er við að hönnunarkostn­aður ferju af þessari stærðargráðu geti numið allt að 15% af heildarkostnaði. Ákveðið var að skipta verkefninu upp og bjóða út fyrsta hluta hönnunar sérstaklega. Áætlaður hönnunarkostn­aður var 800.000 evrur (um 116 millj. kr.), þar af voru áætlaðar 300.000 evrur (44 millj. kr.) í prófanir og hermanir. Undanskilið í hönnunarkostnaði var eftirlit með hönnun, ráðgjöf við vinnuhóp, þátttaka í hermun, frekari prófanir o.fl.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert