Afbrotum fjölgar um 13%

Þorkell Þorkelsson

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust 828 tilkynningar um hegningarlagabrot í október. Það sem af er ári hefur tilkynntum hegningarlagabrotum fjölgað um 13 prósent samanborið við sama tímabil síðustu þriggja ára.

Tilkynnt var um 12 kynferðisbrot sem áttu sér stað í október, sem er fækkun á milli mánaða, samkvæmt skýrslu lögreglunnar. Þetta eru færri brot en að meðaltali síðustu þrjá mánuði á undan sem og síðustu 12 mánuði. Kynferðisbrotum hefur fækkað um tíu prósent samanborið við sama tímabil síðustu þriggja ára. Mikill fjöldi kynferðisbrota var tilkynntur í byrjun árs 2013 sem dregur upp meðaltalið.  

Tilkynnt var um færri þjófnaði í október samanborið við síðustu þrjá mánuði á undan. Fjöldi tilkynntra innbrota hefur þó verið stigvaxandi síðastliðna mánuði, að september undanskildum. Nú í október bárust 123 tilkynningar um innbrot.

Voru flestar tilkynningar vegna innbrota í bifreiðar. Lögreglan biðlar því til allra að muna að læsa heimilum og ökutækjum þannig að enginn geti farið óhindrað inn. Auk þess að skilja aldrei eftir verðmæti í ökutækjum þannig að þau séu sýnileg. Þar sem líða fer að jólum á það sérstaklega við um jólagjafir, en einnig tölvur, síma, gps-tæki, smámynt o.s.frv, segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert