Allar líkur eru á því að hús sem kviknaði í á Snæfellsnesi í morgun sé ónýtt. Húsið, sem er eyðibýli en nýtt sem sumarhús, er á Syðra-Lágafelli 1 í Eyja- og Miklaholtshreppi. Enginn var í húsinu þegar eldurinn kviknaði en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Vesturlandi gekk vel að slökkva eldinn. Slökkvilið og lögregla eru þó enn á staðnum.
Að sögn Theodórs Þórðarsonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Vesturlandi, liggja eldsupptök ekki fyrir að svo stöddu en málið fer nú í rannsókn.
Fyrri frétt mbl.is: Eyðibýli brennur á Snæfellsnesi