Altjón á Plastiðjunni

Svona var umhorfs þegar ljósmyndari og blaðamaður mbl.is kynntu sér …
Svona var umhorfs þegar ljósmyndari og blaðamaður mbl.is kynntu sér aðstæður nú í morgun. mbl.is/Styrmir Kári

„Þetta var erfið nótt hjá öllum hérna í verksmiðjunni,“ segir Axel Óli Ægisson, framkvæmdastjóri Plastiðjunnar á Selfossi sem brann í nótt. Hann segir altjón hafa orðið á verksmiðjunni sem framleiðir meðal annars plastflöskur fyrir Vífilfell og Ölgerðina.

Eldur kom upp í verksmiðjunni að Gagnheiði 17 í gærkvöldi og stóð slökkvistarf fram á morgun. Formlegu slökkvistarfi lauk um klukkan sjö í morgun en síðan þá hefur slökkvilið þurft að slökkva í glæðum að minnsta kosti tvisvar. Ljóst er að húsnæðið er gerónýtt. 

Axel Óli segir að fulltrúar Plastiðjunnar hafi ekki ennþá fengið að fara inn í bygginguna. Lögreglan sé á leið á vettvang að rannsaka orsök eldsins.

Frá eldsvoðanum í Plastiðjunni í nótt. Byggingin er sögð gerónýt.
Frá eldsvoðanum í Plastiðjunni í nótt. Byggingin er sögð gerónýt. Mynd/Lárus Bjarnason

Plastiðjan framleiðir meðal annars plastflöskur, drykkjarmál, tappa og dósir. Á meðal viðskiptavina fyrirtækisins eru Vífilfell, Ölgerðin, Mjólkursamsalan og fleiri. Framkvæmdastjórinn segist ekki vita hvert framhaldið verður á þessari stundu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert