„Dýr inní mér sem þarf að hleypa lausu“

„Það er svona dýr inní mér sem þarf að hleypa lausu og það gerist þegar ég fer inn í búrið,“ segir Sunna Rannveig Davíðsdóttir nýbakaður Evrópumeistari í blönduðum bardagalistum eða MMA. mbl.is kíkti á æfingu hjá henni og Bjarka Þór Pálssyni í Mjölni í dag en hann vann einnig titil á mótinu.

Hún segir marga verða hissa þegar þeir heyra af áhugamálinu þar sem hún sé frekar róleg manneskja. Þau stefna bæði á atvinnumennsku í greininni á fyrstu mánuðum næsta árs og það verður spennandi að fylgjast með þessum öflugu íþróttamönnum á næstu misserum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert