Sluppu ómeiddir frá árekstri

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

 Tilkynnt að bifreið hafi verið ekið á grindverk í nótt en þrír voru í bifreiðinni og virðast þeir hafa sloppið ómeiddir. Ökumaður sagðist hafa ekið of hratt inn í beygju og misst stjórn á bifreiðinni svo hún endaði utan vegar og á grindverki. Bifreiðin var dregin á brott með kranabifreið, segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Síðdegis í gær var óskað aðstoðar lögreglu vegna umferðaróhapps. Annar ökumannanna neitaði að hafa ekið utan í bifreið hins. Tjón hins vegar ekkert og því máli lokið að sögn lögreglu en fleiri umferðaróhöpp komu til kasta lögreglunnar eða voru leyst með tjónatilkynningum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert