Veruleg áhætta vegna Farice-lána

Farice á og rekur sæstrengi milli Íslands og Evrópu
Farice á og rekur sæstrengi milli Íslands og Evrópu

Þrátt fyrir að fjárhagsstaða fyrirtækisins Farice ehf. hafi batnað á undanförnum árum er enn veruleg áhætta fyrir ríkissjóð af ábyrgðum á lánum félagsins. Þetta kemur fram í eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar um aðkomu ríkisins að málefnum Farice, en félagið á og rekur sæstrengi milli Íslands og meginlands Evrópu.

Árið 2012 birti Ríkisendurskoðun upphaflega skýrslu um starfsemina, en þar kom m.a. fram að fjárhagsstaða félagsins væri erfið og að ríkið hefði þurft að leggja því til fé, bæði í formi hlutafjár og skammtímalána, og gangast í ábyrgðir vegna lántöku þess. Í árslok 2012 hefðu ríkið og Landsvirkjun átt um 60% í félaginu. Þetta kemur fram í frétt á vef Ríkisendurskoðunar.

Í nýrri eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að á tímabilinu 2012–14 hafi fjárhagsstaða félagsins batnað umtalsvert. Tap af rekstri hafi minnkað og skuldir lækkað. Engu að síður telur stofnunin að áhætta ríkissjóðs vegna ábyrgða á lánum félagsins sé veruleg. Í árslok 2014 námu skuldir félagsins um 8,3 milljörðum króna og var ríkisábyrgð á um 85% af þeirri fjárhæð.

Í skýrslu sinni árið 2012 benti Ríkisendurskoðun á að verklag við veitingu ríkisábyrgða vegna Farice hefði ekki alltaf verið í samræmi við lög um ríkisábyrgðir. Þá hefði komið fyrir að vantað hefði heimildir í fjárlögum og fjáraukalögum vegna aðkomu ríkisins að félaginu eða þá að þær hefðu verið ófullnægjandi á einhvern hátt. Enn fremur hefði þjónustusamningur Fjarskiptasjóðs (sem úthlutar fjármunum til uppbyggingar á stofnkerfum fjarskipta) við félagið ekki verið í fullu samræmi við reglur.

Vegna þessara annmarka beindi Ríkisendurskoðun nokkrum ábendingum til stjórnvalda og Fjarskiptasjóðs. Fjármála- og efnahagsráðuneytið var m.a. hvatt til að virða skilyrði laga um ríkisábyrgðir og tryggja að skýringar með tillögum um fjárveitingar í frumvörpum til fjárlaga og fjáraukalaga væru ávallt fullnægjandi. Innanríkisráðuneytið var hvatt til að tryggja Fjarskiptasjóði fjárhagslegt bolmagn til að fylgja eftir skuldbindingum í þjónustusamningi hans við Farice. Fjarskiptasjóður var hvattur til að skilgreina betur tiltekin atriði í þjónustusamningnum.

Í eftirfylgniskýrslunni kemur fram að frá 2012 hafi mál þróast með þeim hætti að Ríkisendurskoðun telur ekki ástæðu til að ítreka þessar ábendingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert