Sendu hund úr landi

Hundurinn var sendur úr landi. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Hundurinn var sendur úr landi. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Skjáskot Youtube

Matvælastofnun hefur sent hund úr landi vegna falsaðra innflutningsgagna. Stofnunin vill að gefnu tilefni brýna fyrir innflytjendum gæludýra að ganga úr skugga um að öll tilskilin vottorð séu til staðar og að þau séu gefin út af þar til bærum aðilum.

Vottorð um mótefnamælingu vegna hundaæðis (sem staðfesting á bólusetningu) er eitt þeirra skilyrða sem sett er vegna innflutnings hunda og katta til Íslands.

Nýlega var hundur fluttur til Íslands sem var með gilt innflutningsleyfi en vottorð vegna mótefnamælingar var hins vegar falsað. Þetta var staðfest af dýralæknayfirvöldum í viðkomandi landi. Innflytjandi hafði lagt undirbúning innflutnings í hendur ræktanda hundsins og svo virðist sem dýralæknir, sem sá leitaði til þar í landi, hafi lagt fram þessa fölsuðu blóðprufuniðurstöðu.

Samkvæmt reglugerð nr. 935/2004 um innflutning gæludýra og hundasæðis ber að lóga dýri eða senda það úr landi ef vottorð eru fölsuð. Hið síðarnefnda varð niðurstaðan í máli þessa hunds og var hann sendur úr landi eftir nokkurra daga dvöl í einangrun og þar með féll innflutningsleyfið samstundis úr gildi. 

Falsanir vottorða er raunverulegt vandamál sérstaklega frá þriðju ríkjum til EES landa. Því er öllum innflytjendum gæludýra bent á að ganga úr skugga um að allt undirbúningsferlið (bólusetningar, blóðprufur o.fl.)  fari fram samkvæmt settum reglum. Matvælastofnun mun í framhaldi af þessu mæla með að innflytjendur notist við rannsóknarstofur viðurkenndar af ESB vegna mótefnamælingar fyrir hundaæði

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert