Bók Jóns Kalmans best í Frakklandi

Jón Kalman Stefánsson.
Jón Kalman Stefánsson. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Skáldsaga Jóns Kalmans Stefánssonar, Fiskarnir hafa enga fætur, hlaut í gærkvöldi eftirsótt bókmenntaverðlaun í Frakklandi.

Var hún valin sem besta erlenda skáldsagan sem komið hefur út þar í landi á árinu.

Verðlaunin veitti virt bókmenntatímarit, LIRE, og voru þau afhent við hátíðlega athöfn í Grand Palais í París í gær þar sem valin voru bestu nýju verkin í hinum ýmsu flokkum bókmennta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert