Bæjarstarfsmaður Seltjarnarness gekk fram á hræ af hval nærri Gróttu í dag. Nokkurn daun leggur af hræinu að því er segir í tilkynningu frá bænum.
Vinna er hafin við að láta alla opinbera aðila, sem koma að fundi sem þessum, vita. Líklegt er talið að hvalurinn hafi verið um 6-8 metra langur.