Heimsóknir takmarkaðar vegna RS-veiru

mbl.is/Eggert

Heimsóknir barna hafa verið takmarkaðar á þrjár kvenna- og barnadeildir Landspítalans vegna RS-veiru. Vegna sýkingarhættu eru allar heimsóknir barna yngri en 12 ára bannaðar á deildunum.

Um er að ræða vökudeild, fæðingarvakt og meðgöngu- og sængurlegudeild.

Jafnframt er óskað eftir að heimsóknir annarra séu takmarkaðar, að því er segir á vef spítalans.

Þetta eru ráðstafanir sem gripið er til þegar RS-vírus greinist eins og nú er komið dæmi um. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert