Samninganefnd Félags leikskólakennara skrifaði undir nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga um klukkan 22 í gærkvöldi. Gildistími samningsins er frá 1. júní 2015 til 31. mars 2019.
Þetta kemur fram á vef Kennarasambands Íslands.
Kjarasamningurinn verður kynntur um helgina og í næstu viku. Auglýsing um nánari fundartíma og fundarstaði verður send út fljótlega sem og upplýsingar um hvernig atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn verður háttað.