Ótti borgaryfirvalda ástæðulaus

Stjórnarráð Íslands.
Stjórnarráð Íslands. mbl.is/Ómar

Ástæðulaust er fyrir borgaryfirvöld að óttast um afdrif húsanna þriggja sem nefnd eru í bréfum borgarstjóranna. Húsið við Lindargötu 7 hefur verið friðlýst og segir sig því sjálft að gildandi skipulag veitir ekki heimild til niðurrifs hússins.

Kemur þetta fram í bréfi forsætisráðherra til borgarstjórans varðandi uppbyggingu á stjórnarráðsreit, en borgarstjóri hefur sent nýráðnum húsameistara ríkisins bréf þar sem lýst er yfir vilja borgarinnar um að þrjú gömul hús fái að standa áfram á reitnum.

„Vísað er til bréfs yðar, dags. 29. október sl. sem sent var Húsameistara ríkisins og fjölmiðlum. Í bréfinu ítrekið þér erindi sem forveri yðar sendi forsætisráðuneytinu á síðastliðnu ári og varðar vilja borgarinnar til að eiga samskipti við forsætisráðuneytið um skipulag framtíðaruppbyggingar á vegum Stjórnarráðsins. Forsætisráðuneytið hefur verið, og er enn, reiðubúið til að eiga samstarf við borgina um þessi mál og telur það af ýmsum ástæðum tímabært og æskilegt. Ráðuneytið fagnar því áhuga Reykjavíkurborgar á slíku samstarfi,“ segir í bréfi forsætisráðherra.

„Ástæðulaust er fyrir borgaryfirvöld að óttast um afdrif húsanna þriggja sem nefnd eru í bréfum borgarstjóranna. Húsið við Lindargötu 7 hefur verið friðlýst og segir sig því sjálft að gildandi skipulag veitir ekki heimild til niðurrifs hússins. Stjórnvöld hafa varið fjármagni í viðgerðir á gamla Hæstaréttarhúsinu við Lindargötu 3 og hyggjast nýta það áfram. Þá stendur ekki til að rífa húsið sem stendur við Sölvhólsgötu 13.

Forsætisráðuneytið fagnar þeirri stefnumörkun sem felst í yfirlýstum vilja Reykjavíkurborgar til að endurskoða skipulag miðborgarinnar með það að markmiði að vernda söguleg mannvirki sem ekki njóta friðunar vegna aldurs.

Ráðuneytið væntir þess að sama nálgun verði viðhöfð við endurskoðun skipulags á öðrum reitum í miðborg Reykjavíkur og lítur svo á að í erindi borgarinnar felist auk þess hvatning til forsætisráðuneytisins um að tryggja að fleiri hús, sem ekki njóta sjálfkrafa aldursfriðunar samkvæmt lögum, verði varðveitt. Ráðuneytið mun leitast við að fylgja þeirri hvatningu vel eftir.“

Fyrri frétt mbl.is:

Vill friðlýsa gömul hús á stjórnarráðsreit

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert