Gögnin hvort sem er öllum aðgengileg

mbl.is/Ernir

Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, segir að vefirnir sem urðu fyrir árás innihaldi gögn sem hvort sem er eru opin almenningi. Þau eru kirfilega aðskilin frá öðrum gögnum ráðuneyta.

Vefsíðum Stjórnarráðs Íslands var lokað í gærkvöldi í kjölfar álagsárásar sem virðist hafa verið skipulögð erlendis frá.

Hatrammari árás en áður

„Stjórnarráðið hefur verið meðvitað um að utanaðkomandi árásir sem þessar gætu átt sér  stað og m.a.  þess vegna hafa upplýsingar sem ávallt eru aðgengilegar almenningi á opnum upplýsinga- og fréttavefjum verið kirfilega aðskildar frá öðrum gögnum ráðuneyta.  Við höfum verið og erum sífellt að vinna að því að efla gagnaöryggi enn frekar og það er nú sem fyrr gert með hópi sérfræðinga á þessu sviði. Það er miður að þessi upplýsingavefur hafi legið niðri tímabundið vegna þessa“, segir Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu.

Umrædd árás beindist að netþjónum vefja ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands en engin gögn voru í hættu. Vefirnir innihalda gögn og upplýsingar sem eru þegar aðgengileg almenningi. Vefirnir voru hafðir lokaðir þar til ljóst var að ástandið var komi aftur í eðlilegt horf á tíunda tímanum í morgun. Upplýsingasíður Stjórnarráðsins eru nú komnar aftur í eðlilegt horf og aðgengilegar notendum. Rétt er að ítreka að upplýsingavefur Stjórnarráðsins er aðskilinn frá öðrum gögnum Stjórnarráðsins og því voru engin trúnaðargögn í hættu, segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert