Jólin minntu á sig í dag

Jólamarkaður var opnaður við Elliðavatn í dag.
Jólamarkaður var opnaður við Elliðavatn í dag. Eggert Jóhannesson

Íbúar á höfuðborgarsvæðinu nutu þess margir að vera úti við í dag enda einstaklega fallegt veður. Þykkt snjólag er yfir öllu og afskaplega jólalegt við Elliðavatn og á fleiri stöðum þar sem fólk kom saman. 

Á morgun er fyrsti sunnudagur í aðventu og venju samkvæmt verður kveikt á Ólsóartrénu um miðjan dag á Austurvelli. En Kópavogsbúar kveiktu ljósin á sínu tré í dag og það var einnig gert á Miðbakkanum þar sem ljósin á Hamborgartrénu voru tendruð síðdegis.

Mokstur á strætum og stígum Reykjavíkur gekk vel í dag. Gríðarlegt fannfergi var í borginni í morgun og voru öll moksturstæki kölluð út snemma. Var búið að ryðja allar forgangsleiðir um tíuleytið  í morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert