Tíðindalítil nótt hjá lögreglu

Lögreglan fylgdist með ölvunarakstri í nótt á Sæbraut.
Lögreglan fylgdist með ölvunarakstri í nótt á Sæbraut. Júlíus Sigurjónsson

Tíðindalítið var hjá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í nótt, en þó voru nokkrir ökumenn stöðvaðir vegna ölvunaraksturs og tilkynnt var um líkamsárás á skemmtistað á öðrum tímanum í nótt. Þolandi var fluttur á slysadeild til skoðunar en ekki er vitað um gerendur.

Þá slasaðist kona á höfði eftir slys á skemmtistað og var hún einnig flutt til skoðunar á slysadeild.

Lögreglu var í nótt tilkynnt um innbrot og þjófnað í fyrirtæki í austurbænum og í Grafarvogi var tilkynnt um rúðubrot í sjoppu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert