Fluttur á bráðamóttöku eftir árekstur

Einn var fluttur á bráðamóttöku LSH.
Einn var fluttur á bráðamóttöku LSH. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Einn var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans eftir bílslys á mótum Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar í Garðabæ. 

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var um að ræða árekstur tveggja bifreiða. Beita þurfti klippum til að ná manneskju úr öðrum bílnum en ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort um ökumann bifreiðarinnar var að ræða.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert