Fótboltabullur stórskemmdu sumarbústað

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Í gærdag tilkynnti eigandi sumarbústaðar í Biskupstungum til lögreglunnar á Suðurlandi að 18 breskir knattspyrnuáhangendur, sem hann leigði bústaðinn, hefðu stórskemmt hann. Mennirnir voru sagðir hafa verið með mjög ölvaðir og engu eirt. Eigandinn er að láta meta tjónið og mun leggja fram formlega kæru á Bretana.

Þá handleggsbrotnaði kona síðastliðinn miðvikudag þegar hún datt af vélsleða á Langjökli við Skálpanes. Sjúkrabifreið ásamt björgunarsveitarmönnum fór á staðinn. Konan var flutt á slysadeild.

Ellefu umferðaróhöpp voru skráð hjá lögreglunni á Suðurlandi í síðustu viku. Engin alvarleg slys urðu í þeim en í einstaka tilvikum talsvert tjón á ökutækjum.

Lögreglumenn á Kirkjubæjarklaustri kærðu níu ökumenn fyrir of hraðan akstur. Allir voru þessir ökumenn erlendir á bílaleigubílum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert