Fjórðungi fleiri umsóknir um fjarnám

Umsóknum í fjarnám Háskólabrúar Keilis hefur fjölgað milli ára og eru þær fjórðungi fleiri núna en á sama tíma í fyrra. Nú stunda rúmlega tvö hundruð einstaklingar aðfaranám að háskólanámi í Keili, þar af um helmingurinn í fjarnámi. Þá hófu um þrjátíu einstaklingar fjarnám í Háskólabrú með vinnu í lok nóvember, en það nám er kennt á tveimur árum og hentar vel þeim aðilum sem vilja taka lengri tíma eða vilja stunda námið með vinnu, segir í fréttatilkynningu.

Við næstu útskrift í janúar 2016 má reikna með að heildarfjöldi útskrifaðra nemanda úr Háskólabrú verði samtals hátt í 1.400. Keilir býður upp á aðfararnám í samstarfi við Háskóla Íslands og hafa langflestir nemendur haldið áfram í háskólanám bæði hérlendis og erlendis.

Að loknu námi uppfylla nemendur inntökuskilyrði í háskóla og telst námið sambærilegt stúdentsprófi samkvæmt samningi Keilis og Háskóla Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert