Nakinn í kassa án alls í viku
„Það er svolítið skrýtið að vera 23 ára og það sé ný lífsreynsla að vera einn í viku, það sé eitthvað algerlega framandi og skrýtið,“ segir Almar Atlason, myndlistarnemi, en hann ætlar að dvelja næstu vikuna lokaður nakinn inni í kassa í Listaháskólanum.
mbl.is hitti hann í morgun þegar hann var að reykja síðustu sígarettuna áður en haldið var inn í kassann en hann segir að fyrst og fremst sé þetta tilraun og eina leiðin til að komast að því hvort hann geti þetta raunverulega sé að láta á það reyna.
Margir leiða eflaust hugann að praktískum atriðum eins og hvernig hann ætli að nærast og gera þarfir sínar. En hann ætlar að láta þau atriði ráðast af sjálfu sér, fólk getur komið mat inn til hans í gegnum lúgu og hann getur að sama skapi hent hlutum út í gegnum lúgu í kassa á gólfinu. „Fullkomið stjórnleysi,“ segir hann og segir að tilraunin snúist ekki bara að honum sjálfum heldur líka að því hvernig fólk hugsar um fólkið í kring um sig.
Hægt er að fylgjast með Almari í gegnum streymi á youtube og frá því í morgun er hann kominn með vatnsflösku, klósettpappír og sitthvað fleira í kassann til sín. Verkefnið er lokaverkefni í námskeiðinu Leiðir og úrvinnsla.

Innlent »
- Mótmæla fyrir utan Valhöll
- Mótmæla fyrir utan Framsóknarhúsið
- Funduðu með Bjarna í Valhöll
- Ólafur: Sagði ekkert rangt
- Sigmundur prýðir forsíðu Reddit
- „Hlutirnir breytast mjög hratt“
- Mótmælendum fjölgar við Austurvöll
- Afstaða Sigmundar „virðingarverð“
- Barið í girðingar við þinghúsið
- Forseti Alþingis á leið á Bessastaði
- Upphaf að dauðastríði ríkisstjórnarinnar
- Sigmundur staddur í stjórnarráðinu
- Situr áfram sem þingmaður
- Sigmundur bar ekki fram formlega tillögu
- Ekki búið við óbreytt ástand
- Fyrsti hausinn fokinn
- Forseti alþingis fundar með forseta
- Þingmenn í Valhöll neita að tjá sig
- Sáttur við ákvörðun Sigmundar
- Ekki nóg og áfram með vantraustið
- Skrítið að taka við af Júlíusi
- Sigurður Ingi taki við af Sigmundi
- Sigmundur kominn af fundi
- Bjarni kominn til Bessastaða
- „Snaggaraleg afgreiðsla“ Júlíusar
- Vinkonur unnu 14 milljónir
- Fór yfir sjónarmið sjálfstæðismanna
- Bjarni mættur í Valhöll
- Ómaklegt gagnvart Sjálfstæðisfólki
- Finnst Júlíus stíga merkilegt skref
- Flokkar stjórnarandstöðunnar funda
- Júlíus Vífill segir af sér
- Óskar tímabundins leyfis
- Segir forsetann innleiða nýtt stjórnarfar
- Sigmundur mættur í þinghúsið
- Þingrofsrétturinn ekki kúgunartæki
- Vegferð Sigmundar fordæmalaus
- „Ekki fráleitt“
- Búnir að klúðra atburðarásinni
- Veitti ekki heimild til þingrofs
- „Bless, bless“
- Fjölmargar spurningar vaknað
- Verðum ekki barin til hlýðni
- Aflandsfélagaeign verður rannsökuð
- Sigmundur kominn á Bessastaði
- Forsætisráðherra aldrei sagt af sér
- Þingrof án stuðnings sjálfstæðismanna
- Setja fyrirvara við þjónustusamning RÚV
- Allir „mátulega ótilbúnir“ í kosningar
- Segir Sigmundi klínt með glæpamönnum
- Birgitta: Eina leiðin að standa og öskra
- Forsetinn segir stöðuna alvarlega
- Víða greiðfært á landinu
- Samstarfið ekki á bláþræði
- Ísland á forsíðu Guardian
- Farfuglarnir koma heim
- Taldi að ræða ætti efnahagsbatann
- „Nóg“
- Bjarni og Ólafur komnir heim
- Enn er allt fannhvítt í Bláfjöllum
