Skiluðu síma og peningum

Veskið umrædda.
Veskið umrædda. Mynd/Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

Á lögreglustöðinni við Hringbraut í Reykjanesbæ bíður símahulstur eiganda síns. Það voru þrír ungir menn sem fundu hulstrið við Garðaveg í gær, en í veskinu voru sími af gerðinni iPhone og sex þúsund krónur í peningaseðlum.

Auglýst var eftir eiganda símahulstursins á Facebook-síðu lögreglustjórans á Suðurnesjum í gær, en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Reykjanesbæ er hann ófundinn. Þökk sé hinum heiðarlegu piltum eru þó einhverjar líkur á að hulstrið, sími og fjármunir ratir í réttar hendur.

Þessu símahulstri með iphone og pening í var skilað á lögreglustöðina núna rétt í þessu. Þetta fannst við Garðaveg í Reykjanesbæ. Eigandi getur nálgast þetta hjá okkur.

Posted by Lögreglustjórinn á Suðurnesjum on Sunday, 29 November 2015
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert