Ættleiðingar eru síðasta lausnin

Ungir Sýrlendingar í búðum fyrir börn sem hafa orðið viðskila …
Ungir Sýrlendingar í búðum fyrir börn sem hafa orðið viðskila við foreldra sína. AFP

Vegna umræðu um mögulegar ættleiðingarbarna frá Sýrlandi minnir UNICEF á mikilvægi þess að sameina fjölskyldur í tilkynningu.

„Skiljanlegt er að fólk hugsi til þess möguleika að ættleiða börn frá Sýrlandi en það er hvorki skynsamlegasti kosturinn né sá sem mest þörf er á. Þau börn frá Sýrlandi sem talað er um sem munaðarlaus eiga langflest fjölskyldu. Þau eiga föðursystur, móðurbræður, ömmur, afa, systkynabörn, ömmusystur, afabræður og aðra ættingja. Mörg eiga auk þess foreldra á lífi en hafa orðið viðskila við þá. Verkefnið er og verður að ná að sameina þessi börn fjölskyldu sinni og gera þeim kleift að vera saman. Að þessu vinna UNICEF og aðrar hjálparstofnanir hörðum höndum.“

Í tilkynningunni segir að flest hjálparsamtök sem vinni í þessum geira, þar á meðal UNICEF, leggi áherslu á að ættleiðingar milli landa séu ávallt síðasta lausnin, þegar sameining við fjölskyldu er þaulreynd. Þetta eigi sérstaklega við þegar neyðarástand ríkir eins og í Sýrlandi þar sem óeðlilegur þrýstingur getur myndast á fjölskyldur að láta frá sér börn og öryggisástand er það ótryggt að erfitt er að sannreyna hvort börn eigi aðstandendur á lífi eða ekki.

„Vert er að geta þess að ríki Mið-Austurlanda leyfa almennt ekki ættleiðingar á milli landa þar sem formlegar ættleiðingar eru ekki það sem tíðkast á svæðinu heldur ótímabundið fóstur. Af þeim löndum sem tengjast inn í átökin í Sýrlandi hefur einungis Tyrkland fullgilt Haag-sáttmálann um vernd barna og samvinnu varðandi ættleiðingu á milli landa. Bæði íslensk stjórnvöld og flestar alþjóðlegar stofnanir sem starfa í þágu barna krefjast þess að allar ættleiðingar byggist á grundvallarreglum Haag-sáttmálans ásamt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert