Enn eitt metið slegið í umferðinni

Vandi er að spá fyrir umferðina í vetrarmánuðum þar sem …
Vandi er að spá fyrir umferðina í vetrarmánuðum þar sem veðrið skiptir mestu máli. Ef tíðin og umferðin hegðar sér líkt og í meðalári gæti umferðin aukist talsvert í desember miðað við sama mánuð á síðasta ári og heildaraukning ársins numið rúmlega 6%. mbl.is/Skapti

Enn eitt metið hefur verið slegið í umferðinni að sögn Vegagerðarinnar og það stefnir í að árið 2015 verði metár. Aldrei áður hefur mælst meiri umferð um 16 lykilteljara á hringveginum í nóvembermánuði. Umferðin jókst um tæp sex prósent frá því í sama mánuði í fyrra.

Nú lítur út fyrir að umferðin í ár verði um sex prósentum meiri en hún var í fyrra, þ.e. stöðvi veðrið ekki ökumenn í desember.

Fram kemur á vef Vegagerðarinnar, að umferð hafi aukist um 5,9% milli nóvembermánaða. Þessi aukning hafi orðið til þess að enn eitt metið, í umferðinni frá árinu 2007, var slegið en aldrei hefur umferðin mælst eins mikil í nóvember mánuði og í nýliðnum mánuði.

 Samtals fóru að jafnaði rúmlega 54 þúsund ökutæki yfir mælisniðin 16 í mánuðinum. Umferð í nóvember hefur þá vaxið um 1,8%, að jafnaði frá árinu 2005 til 2015. Mest jókst umferðin um Austurland eða 12,9% en minnst um Suðurland eða 1,9%.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert