Flug á áætlun og skólar opnir

Það er eins gott að fara varlega út í daginn. …
Það er eins gott að fara varlega út í daginn. Myndin er úr safni. mbl.is/Golli

Það er ekki að sjá annað en að allt flug sé á áætlun enn sé komið er, jafnvel þótt Veðurstofa spái hvassviðri eða stormi með snjókomu og skafrenningi í dag. Samkvæmt komu- og brottfaraáætlunum Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkurflugvallar er bæði utanlands- og innanlandsflug á áætlun.

Þá hafa ekki aðrar fregnir borist en að grunnskólar Reykjavíkurborgar verði opnir í dag, en samkvæmt reglum slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins er það á ábyrgð foreldra að taka ákvörðun um hvort senda eigi börn í skólann þegar veður er vont.

Frétt mbl.is: Grunnskólar verða opnir á morgun

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert