Vísitala framleiðsluverðs hefur lækkað um 5,2% síðasta árið. Hagfræðingur Samtaka iðnaðarins segir þróun vísitölunnar benda til versnandi samkeppnisstöðu íslensks iðnaðar.
Samhliða auknum kostnaði hérlendis hefur verð á ýmsum mikilvægum útflutningsafurðum lækkað verulega.
Þannig hefur vísitala framleiðsluverðs á afurðum stóriðjunnar lækkað um 16,9% á síðustu 12 mánuðum, að því er fram kemur í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í dag.