Opnað í Hlíðarfjalli á fimmtudag

Hressar stelpur í Hlíðarfjalli.
Hressar stelpur í Hlíðarfjalli. Ljósmynd/Auðunn Níelsson

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar verður opnað á fimmtudaginn og verður opið þann dag frá klukkan 18–21. Á föstudag verður opið frá klukkan 16–19 og frá 10–16 á bæði laugardag og sunnudag. Þrátt fyrir þó nokkuð fannfergi á Akureyri þá hefur snjó ekki fest jafn vel í fjallinu en þó eru flestar skíðaleiðir að verða klárar fyrir skíðafólk. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akureyrarbæ. 

„Já, við erum komin með nóg af snjó í valdar leiðir en þó ekki allar, til að mynda verður ekki hægt að opna Strýtuna alveg strax,“ er haft eftir Guðmundi Karli Jónssyni, forstöðumanni skíðasvæðisins í tilkynningu. „Unnið er að því að troða helstu leiðir og snjóbyssurnar eru látnar ganga dag og nótt þegar frostið er nægilega mikið sem það hefur verið undanfarið. Ákveðið hefur verið að hafa opið frá fimmtudögum til sunnudaga fram að jólum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert