Rekstur Landspítala í járnum

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi. mbl.is/Eggert

Hlutverk Alþingis og sérstaklega fjárlaganefndar er að tryggja að tekjustofnar ríkisins dugi fyrir sameiginlegri grunnþörf og þjónustu samfélagsins. Þetta segir í yfirlýsingu frá læknaráði og hjúkrunarráði Landspítalans. Þar segir að fagleg þjónusta Landspítala byggi á því að fjárveitingar dugi fyrir því hlutverki sem þjóðarsjúkarahúsinu sé ætlað að gegna. Rekstur þess hafi verið í járnum undanfarin ár og  fjármagn til uppbyggingar og endurnýjunar innviða hans naumt skammtað og í mörg ár nánast alveg skorið niður. Á þessu þurfi að verða breyting.

„Læknaráð og hjúkrunarráð Landspítala styðja af fullum hug eljusemi forsvarsmanna spítalans til að tryggja fullnægjandi framlög til rekstrar spítalans í fjárlögum ársins 2016 og minna á að taka verður tillit til fjölgunar í hópi aldraðra og aukinnar þjónustueftirspurnar sem vex að meðaltali um 1,7% á milli ára. Ekki verður heldur undan því skotist að sinna viðhaldi og endurnýjun á starfsaðstöðu og húsnæði spítalans, sem vanrækt hefur verið um langt árabil vegna fjárskorts. Ekki verður séð að í núverandi frumvarpi að fjárlögum sé gert ráð fyrir þessum mikilvægu liðum með fullnægjandi hætti,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að fjárveitingar til innviða heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi, þ.e.a.s. endurnýjunar og viðhalds húsnæðis, tækjakaupa og framþróunar hafi undanfarin ár verið með því allra lægsta sem um getur í OECD löndum. Að meðaltali verji OECD löndin 0,5% af VLF sem á Íslandi samsvarar 10 milljörðum króna ár hvert og að ef miðað er við Norðurlöndin, t.d. Danmörku, væru um 14 milljarðar eyrnamerktir þessum lið.

„Íslensk stjórnvöld hafa skv. skýrslu OECD varið sem svarar 0,1% af VLF í fjárfestingar í innviðum heilbrigðisþjónustunnar og eru þar í næst neðsta sæti OECD landanna. Lítil sem engin merki eru um að í dag sé gert ráð fyrir breytingum á þeirri þróun eða framlögum stjórnvalda til málaflokksins. Slíkt er áhyggjuefni og læknaráð og hjúkrunarráð Landspítala hvetja til þess að sú vegferð verði strax tekin til endurskoðunar.

Læknaráð og hjúkrunarráð Landspítala leggja traust sitt á að nefndarmenn í fjárlaganefnd og svo Alþingi allt hlutist til um það að fjárveitingar komandi árs tryggi að hægt sé að reka Landspítala í samræmi við þær kröfur og hlutverk sem honum er ætlað.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert