Þrír með fölsuð skilríki

Frá Keflavíkurflugvelli.
Frá Keflavíkurflugvelli. Ljósmynd/Sigurgeir Sigurðsson

 Þrír einstaklingar hafa verið stöðvaðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á undanförnum dögum með fölsuð skilríki.

Samkvæmt tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum voru skilríkin ýmist grunnfölsuð eða breytifölsuð.

Einn gaf lögreglunni á Suðurnesjum þá skýringu að hann hefði séð vegabréfið sem hann framvísaði á borði veitingastaðar erlendis og tekið það ófrjálsri hendi. Hinir gáfu óljósar skýringar á því hvernig þeir hefðu komið höndum yfir hin fölsuðu skilríki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert