Þurfum meiri fiskeldisfisk

Fiskeldisfiskur verkaður.
Fiskeldisfiskur verkaður. mbl.is/Helgi Bjarnason

Nauðsynlegt er að auka framboð á eldisfiski vegna aukinnar eftirspurnar eftir fiski til að halda framboði stöðugu og minnka álag af fiskveiðum.

Svo segir í frétt á vef Matís þar sem fram kemur að framleiðsla fiskmjöls, sem er ríkjandi prótíngjafi í fiskafóðri, hafi dregist saman þar sem nýting uppsjávarfisks í verðmætari afurðir hefur aukist vegna betri fiskveiðitækni og betri kælingar hráefnisins.

Samkvæmt fréttinni hefur dr. Ragnar Jóhannsson, verkefnisstjóri hjá Matís, unnið að ýmsum verkefnum sem miða að því að finna önnur hráefni en fiskmjöl fyrir fiskeldi og nýta ónotað hráefni. Úrgangur frá sellulósaverksmiðjum í Svíþjóð og ræktun lífmassa í jarðhitalofttegundum frá Hellisheiðarvirkjun eru möguleikar sem hafa verið kannaðir. 

„Ragnar hefur unnið með sænskum fyrirtækjum við framleiðslu Single Cell Protein (SCP) úr hliðarstraumum frá skógariðnaði. Meginmarkmiðið er að þróa vöru sem kemur í stað fiskimjöls. Finna þurfti hvaða örverur væru heppilegastar og hvaða hliðarstraumar í sellulósa- og pappírsframleiðslu væru best fallnir til þessarar framleiðslu. Próteinmassinn er þurrkaður og blandað við önnur hráefni svo úr verði fiskeldisfóður. Þetta fóður hefur verið reynt í tilapíueldi með góðum árangri og er nú verið að þróa fóður fyrir bleikjueldi.“

Í fréttinni segir frá annarri aðferð sem reynd hafi verið þar sem brennisteinsvetni frá Hellisheiðarvirkjun var notað sem orkugjafi við ræktun örverulífmassa. 

„Örverurnar vaxa hratt á brennisteinsvetninu, eru síðan þurrkaðar og bætt í fiskeldisfóður. Þessu verkefni var nýlega lokið eftir tveggja ára þróunarvinnu, en frekari rannsókna er þörf til að hámarka árangur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert