„Nú, viltu ekki fá sjónina?“

Íva Marín kveðst óska sér margra annarra hluta en sjónar.
Íva Marín kveðst óska sér margra annarra hluta en sjónar. Ljósmynd/Tabu.is

Íva Marín Adrichem segir það særandi og leiðinlegt að samkvæmt trú margra sé hún annars flokks manneskja eða kraftaverk sem ber að sýna góðmennsku eða að lækna ýmist af fötlun minni eða syndum úr fyrra lífi.

Þetta skrifar hún á vefsíðu samtakanna Tabú í pistli um trúarbrögð og fatlanir. Íva Marín er blind og segir hún frá atviki þar sem maður sem hún mætti í miðborginni hafði ákveðið að „dreifa orði Drottins“ til Ívu og vinkvenna hennar.

„Ég afþakka kurteislega fyrir okkar hönd, sem varð til þess að maðurinn varð hneykslaður og reiður. Þegar ég ætlaði að ganga í burtu stoppaði hann mig og spurði mig hvassri röddu: „Nú, viltu ekki fá sjónina?““

Íva skrifar að hún hafi komist í mikið ójafnvægi og að það eina sem hún hafi getað svarað hafi verið hversu óviðeigandi spurningin væri. Það hafi maðurinn hinsvegar ekki skilið og spurt hana hvað hún vildi.

„Í framhaldi byrjaði hann að segja sögu um það þegar Jesús hitti blindan mann á ferðalagi og veitti honum eina ósk. Blindi maðurinn vildi fá sjónina. Sjálfsagt hefur gerst einhvers konar kraftaverk og maðurinn fengið sjónina, en ég veit það ekki þar sem mér var svo misboðið að ég þoldi ekki að hlusta á restina af sögunni. Því greip ég fram í fyrir manninum og sagðist persónulega óska mér ýmissa annarra hluta en sjónar, til dæmis væri æðislegt ef fullkominn friður ríkti í heiminum. Hann fussaði bara og gekk móðgaður í burtu. Eftir stóð ég niðurlægð og undrandi á því að fólki finnist þurfa að „lækna mig“ og vilji þrönga upp á mig trúarbrögðum til að svo megi verða.“

Viku áður hafði Íva lent í öðru atviki þar sem vanvirðing byggð á trú setti hana út af laginu.

„Þetta var í messu þar sem guðspjallið var lesið um blinda manninn sem Jesús hellti leðju í augun á og hann öðlaðist sjón sem hann hafði ekki verið með frá fæðingu. Áður höfðu lærisveinarnir spurt hvort maðurinn sjálfur eða foreldrar hans hefðu syndgað. Í predikuninni á eftir, gerði presturinn tilraun til að svara spurningu lærisveinainna. Hann sagði mörg börn fæðast árlega með einhvers konar skerðingar og að auðvitað spurja allir foreldrar sig „af hverju ég“. Hann svaraði því út frá kenningu Jesús. Að þessi börn væru einfaldlega valin til að Guð og þegnar hans geti sýnt manngæsku og kraftaverk í verki. Þýðist sem, við eigum að vera góð við fatlað fólk af því það er kraftaverk Guðs á jörðinni.“

 Áreiti og niðurlæging

Íva segir að sér finnist þessi dæmi lýsa vanþekkingu á biblíunni. Þegar talað sé um að blindur maður sjái vegna kraftaverka Jesús telji hún að verið sé að ræða sjón í táknrænni merkingu, í hennar huga hafi Jesú geta gefið aðra sjón en þá veraldlegu. Segist hún telja að Jesú hafi fremur hjálpað fötluðu fólki að finna tilgang með lífi sínu og opnað augu þess fyrir hinu fagra lífi sem hægt væri að lifa.

„Mér finnst alveg fráleitt og hreinlega lýsa barnaskap að fólk skuli túlka þessar dæmisögur svona bókstaflega og vísa svo í þær í daglegu lífi. Þau trúarrit sem bókstafstrúarfólk lifir eftir og þröngva upp á samferðarfólk sitt, voru barn síns tíma en hugsunarháttur breytist í tímanna rás og skoðanir samfélagsins með því,“ skrifar Íva.

„Ég upplifði orð mannsins sem stoppaði mig úti á götu sem áreiti og niðurlægingu. Mér þykir ólíklegt að maður sem aðhyllist vísindahyggju myndi ganga um niðri í bæ á laugardagskvöldum og dreifa boðskap á borð við Darwinisma til gangandi vegfarenda. Því síður myndi sá maður áreita fólk sem einhverra hluta vegna sker sig úr og neyða það til að hlusta á sögur um heilbrigði og lækningar. Að mínu mati skilar svona ofstækishegðun ekki þeim árangri sem boðberar trúarbragða vonast eftir. Ég held frekar að hið gagnstæða gerist. í stað þess að leyfa trúnni að vera siðagrunndvöllur samfélagsins fælir ofstæki okkur frá raunverulega boðskap um kærleikann og veldur ófrið og vanlíðan.“

Íva segir að sem betur fer sé meirihlulti iðkenda trúarbragða friðsamt og gott fólk, sem því miður er þögult. Hvetur hún til þess að samfélagið færi sig úr þögguninni og undirgefni við trúarofstæki og sættist á að lifa samkvæmt því besta sem öll trúarbrögð boða um frið, frelsi, jöfnuð, umburðarlyndi og skilyrðislausan kærleik.

„Hættum ofstækinni og reynum að stuðla að virðingu og skilningi milli fólks, trúarbragða og menningarheima.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert